Minningarsíður...
03.09.2007 11:28:53 / gigga

Hann lifir,,,,, eða hún :D

Já ég er á lífi :D Hef ekki mikin tíma eða löngun til að vera blogga alltaf en geri það svosem til að þóknast fjölskyldu og fjéndum :P

 

Hmm hvað er búið að gerast síðan síðast?

 

Buinn að vera upp á fjalli eins og öll önnur sumur hér nema þetta árið var leiðindar veður allt sumarið næstum, brallaði samt ýmislegt skemmtilegt inn á milli :D Eins og Thelma kom í heimsókn til mín í ca eina viku. :) Fórum á tónleika með Hellbillis sem mér þótti mjög gaman en ekki viss um að Thelma hafi skilið mikið en það stoppaði okkur nú ekki því við dönsuðum upp á borðum og klöppuðum eins og vitleysingar umkringd gömlu fólki :D :haha: Síðan fórum við líka á Kraftfestivalen auðvita líka og þá var gert ýmislegt skemmtilegt sem er samt eiginlega ekki prenthæft þannig það geymist bara í minningunni :D

 

Síðan er ég buinn að keppa einu sinni síðan síðast og fékk þá 2 fimmtu sæti og nokkuð ánægð með það, var í 10 sæti í tölti eftit undanúrslit en hækkað mig um 5 sæti :D Hækkaði mig svo úr 6. sæti upp í 5. sæti í fjórgang :D Síðan eru tvær keppnir eftir á þessu tímabili. Síðan er það bara að byrja að þjálfa fyrir næsta keppnistímabil :D

 

Annars er ég líka byrjuð með minn eigin litla “skóla” ef við getum orðað það þannig!! Er með 7 nemendur einu sinni í viku frá landbúnaðar skóla hér í noregi og er að kenna þeim um íslenska hestinn :D Geðveikt gaman að fá að vera kennarinn en ekki nemandinn :D

 

Hemmm meiri fréttir? Já ég er að fara í 15 daga “frí” til Indónesíu í Október :D Það verður án efa bara að æðislegt að spóka sig um á svona strönd í 15 daga.....aaaaaaa.....mmmm......aaaa.... :haha:

Jæja til aðeins nýrri atburða þá kíti ég til Íslands um helgina! Pantaði miðan minn á fimmtudegi fór á föstudegi og kominn til baka á sunnudeginum :D Hehe bara aðeins að skreppa á ljósanótt :P Mjög fínt borðaði reindar ALLLLT of mikið hehe :D En hitti alla sem vert var að hitta í keflavík, flestir frekar hissa á að sjá mig þar sem ég lét eingan vita að ég væri að koma nema auðvita famelíuna :D

 

Smá púki í tilefni ljósanætur :D

Jæja finnst þetta bara vera alveg nóg af fréttum fyrir þennan mánuðinn eða kannksi þessa árstíðina :D Nei nei segi svona kannski get ég verið duglegri að skrifa ef ég bara reini og já nenni :P

Guðný Kveður að sinni :D


» 12 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 14:19:49 / gigga

Tresfjord...

Var að kepppa um helgina.. Varð í 2 sæti í tolti og 4 í fjórgang :D nenni ekki að skrifa meira en læt fylgja með 2 myndir :D

Gamann Gamann :D bið að heilsa :D


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 09:21:04 / gigga

Mjösmótsmeistari

Jæja best að monta sig pínu :D Var að keppa á mjösmóti um helgina og náði því frábæra takmarki að verða mjösmótsmeistari í ungdómsflokki. Að vera mjösmótsmeistari þíðir að ég var samanlagt best í mínum flokki í fjórgang og tölti :haha: Annars varð ég í 2 sæti í tölti og 3 í fjórgang :D

Smá myndir líka en annars eru fleiri hér til vinstri neðst :D

tölt

Yfirferðatölt

 

tölt

Hægt tölt

Mjösmót meistari í ungdómsflokk

Mjösmótsmeistari í ungdómsflokki 2007


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 18:20:00 / gigga

Fyrsta skiptið á baki :)

Sæti sæti <img src=" title="Sæti sæti :D" width="588" height="391">

:**

Fleiri myndir inn á "Pjakkur" lengst niðri til vinstri :D:D:D Love love....


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 12:21:36 / gigga

Myndir myndir... og nýjir hestar :D

Jæja þá er ég kominn aftur frá Danmörku með 4 nýja hesta :D Þar af er auðvita Pjakkurinn kominn heim loksins :D :D Hinir eru Byr, Dómur og Lói :D Koman myndir inn á "hestar" til vinstri neðst á síðunni :D þar eru líka nýjar myndir af Tönju inn á hennar myndaralbúmi :D love ;****

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.02.2007 14:20:24 / gigga

Meiri myndir auðvita :D

Enþá fleiri myndir í myndaalbúminu hér til hliðar :D Njótið Njótið ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 18:11:39 / gigga

Fyrsta skipti á hestbaki :D

Jæja hver dagur líður áfram með litla skottið og hun er bara fyndinn ef ég lít frá henni þá byrjar hun að væla á "mömmu" ;) síðan hleypur hun eftir mer ut um allt og ég er buinn að sparka svo oft í elskuna mína. Síðan er hun bara í fanginu á mér eða inn í boxi þegar hestarnir eru að koma og fara þar sem hun fattar ekki alveg að þeir geta sparkað í hana eða hlaupið á hana :D Hún er svo lítil :d en hun fór á hestbak áðna á Ljóra ljósið mitt og honum fannst það soldið spes en hun vara bara hrædd og seti klærnar í hann ;) en honum var sama :d

P.S. MUNIÐ EFTIR MYNDUNUM FYRIR NEÐAN :d


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 13:06:48 / gigga

Tanja Ósk Jensen.... Stelpan mín ;D

Hún er 11 vikna lítil prinsessa :D Bara sætust :***


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 17:15:11 / gigga

Blogg hvað er það?

Alltaf verið að segja manni að bloggaaaaaa ennnnnnnn ég nenni því bara ekki :D þannig eg set bara inn myndir þá :D

Jæja þetta er nóggggggggggggg.... blee


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 14:25:21 / gigga

kominn heim...

Jamm kominn frá eiðimörkinni... Blogga þegar ég hef tíma 8|


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 23:23:45 / gigga

bloggi blogg....

Jæja fólk alltaf að biðja um blogg, og þar sem ég er öll fyrir það að þóknast og gleðja alla þá verð ég að víst að skrifa nokkrar línur!! Er búinn að vera í fríi núna í viku, Jói buinn að vera í heimsókn og kósí :D Búinn að versla soldið eins og alltaf samt ekkert ofga, úlpu, skyrtu og bindi ;) nærföt(like always), skó, boli/peysu og síðan fékk ég awsome skó í jólagjöf frá Jóa sín... kostuðu ekki nema um 18 þús íslenskar!!! Það er ekki neiiiiiiit :haha:

Jæja í fríi er ég annars búinn að gera fátt annað en liggja í leti, fórum reindar til Oslo og Ski að versla... Næstum búinn að kaupa allar jólagjafir... Nema mömmu og victoríu, Thelmu, Jóa, Súí og Ruud, Sigga, Frikka, Ármann, Linda og Gummi.... herrðu shit þetta eru soldið margir sem eru eftir :S best að telja upp það sem ég er búinn með það er minnihluti :( Búinn með Ömmu og Afa, Laeilu, Lilju, Kolbrúnu,Skúla og Óla, .... Úúúfff jól..... :S

Annars fer ég alveg að fara til egipt og þá ætla ég ekki að hugsa um neitt svona... ekki huxa um vinnu, ekki huxa um jól, eða fjölskylduna, eða vinina!! Ætla bara að liggja flöt og södra eitthvað framandi úr glasi :P Og kannksi fara á úlfandabak og ef ég nenni kannksi fara sjá Níl, síðan vara ármi að tala um að við ættum að fara í köfun!! En ég veit ekki hvort ég læt hafa mig út í það!!! :S

Ahahaha já síðan var ég að fá kraft festivalen myndirnar frá Guddu og allar myndir af mér virðast vera tekna á því augnabliki þegar ég er að tjá mig eitthvað með tungunni!!! Sjáiði bara :(

ahaha jájá....

Alltaf að tjá mig :S

:haha: ekki spurja :d

Annars var bara gaman að sjá þetta!! Hehe mundi þá almennilga aftur hvernig Geir Ole lítur út!! hehe...

Sætasta bros í heimi :D fyrir utan mitt hehe..

verð að hætta kinnast strákum á djamminu :S Hann og Kim(Mix) ætla að koma og ríða út með mér einhver tíman í Des.. get ekki sagt að mér hlakki til að hitta þá aftur!! hehehehe :D

Síðan að öðru þá eru búnar að vera klikkaðar framkvæmdir í húsinu mínu núna... Búið að skipta um allt gólfið á neðri hæðinni og loftið málað/skipt um sumstaðar! Búinn að mála stofuna... LOKSINS... og fóðra inn gluggana í eldhúsinu, þannig þetta fer bráðum að líta út eins og hús!! :D Mitt hús :haha:

Og að ennnnn öðru... Þá er ármi að halda ball næstu helgi :P Já svona fyrir innfluta/íslendinga!!! Eða samt bara alla sem hann þekki eða búí í nágrenni við hann!! um 100 manna ball :D Bara gaman að því :D

Jæja nenni ekki að skrifa meira elskunar mína!! Love love ;**


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 17:01:53 / gigga

Bassi ÁSTIN mín ;D

Hér er drauma hesturinn minn.. Hann hetir Bassi frá Litla Garði, og er undan Tóni frá Torfunesi og Astrí frá Lilta Garði! Hann með gott tölt og frábært brokk, léttur í beisli og algjör bangsi!! Eina vandmálið er að hann drullu dýr :S en maður getur látið sig dreyma og ég fæ líka að ríða út á honum eins mikið og ég vil :D

Annars allt frábært að frétta hjá mér!! lovjú ;***


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 17:29:22 / gigga

It's alive :D:D:D

Jæja kannksi þarf maður að láta vita að maður er á lífi :D Ekki mikið gerst svosem, bara vinna pínu og svona skemmtilegt! Ég og Ármann vorum að reina finn okkur sjónvarp í gær, fundum síðan 42" plasma sjónvarp á mjög viðráðnalegu verði en NEIIII þá var það UPPSELT!! Þá hélt leidinn áfram og við fundum annað sem var reindar dýrara en NEIIIIII þá komst það ekki inn i bílinn!!! URRRRR ég varð pirruð í annað skiptið síðan ég kom til noregs, Ármann fannst það bara fyndið :D

En ég vill deila einu lagi með ykkur sem hun linda benti mér á! Þetta lag er með vægast sagt sérstökum texta :D

 

Baby your so cool

By: Espen Lind

Oh my God here I go again I'm about to get in deep

I'm completly obsessed with you and that's why I lose my sleep
Can I drink your bathwater can I have your smelly underwear?
I just wanna hold it smell it throw it in the air
Can you hold me tight and whisper dirty little nothings when I come?

Just don't keep me hanging I've been hanging much too long


Oh baby you`re so cool
So beautiful I bet you rule
And you`re nobody`s fool
Oh baby you`re so cool

I love your white lies your spunk your grand price the evil in your eyes
Your smell your Levi`s your taste your dress size your see-through alibies

I follow you around all day I cling to you like I`m some kind of tail
I sleep outside your doorstep and sometimes I even read your mail
I watch you every weekday and I watch you sundays in the park
Baby are you nuclear?
`Cos you`re glowing in the dark

Oh baby you`re so cool
So beautiful I bet you rule
And you`re nobody`s fool
Oh baby you`re so cool

My perversion my introversion has got me on my knees
Let`s get down and explore each other so I can find some peace
One look at you it`s clear I`ve never wanted anyone this bad
I`m pretty damn sure you`re better than the best ones that I`ve had
You`re such a trip just watching you sends shivers down my spine
I bet you`re really bad for me hell I just gotta make you mine

Oh baby you`re so cool
So beautiful I bet you rule
And you`re nobody`s fool
Oh baby you`re so cool

Hehe já endilega finnið ykkur þetta lag, endalaust fyndið ;)

En yfir í svona eitthvað meira gáfulegra þá er komið nýtt máltæki sem kom upp í einum matartímanum hér, það mun vera "ýsa er eins og kvenmaður, hún verður að vera blaut til að vera góð" Það var semsagt ýsa í matinn og vill hafa mína ýsu stappaða með MIKLU smjöri og kartöflum!!! :D Þannig til að ýsan sé góð hjá mér þá verður hún að vera blaut :P Ekki það að þetta hafi verið neitt gáfulegt en samt skemmtilegt! Það var nú einhver meiri vitleysa sem var sögð þetta kvöld en það sem maður man ekki er bara best að hafa gleimt of grafið!! Annað í fréttum er að mér er alveg að takast að drepa Ármann úr hræðslu, einu sinni með að grípa í hann ad aftan meðan hann var að ryksuga hehe, hann öskaraði :D:D og einu sinni þegar hann var að greysta eyrnasnepilinn á mér, fæ alltaf sýkingu i hann, þá öskraði ég geðveikt hátt eins og hann væri að meiða mig og hann svoleiðis STÖKK aftur ábak eins og ég væri eitthvað stór hættulegt fyrirbæri hehehehehe :D:D Linda líka grenjaði úr hlátri :D

Fleiri fréttir, ég "datt" af baki eða fór af baki væri réttar hehe :D Ég var á honum Jonna mínum og við vorum að prófa einhvern nýjan veg ég og Linda og ég var á svona ágætis ferð þegar það kemur allt í einu mýri og Jonni sekkur á bóla kaf með framfæturnar og trýnið á bólakaf líka :klikk: áður en ég vissi af þá stóð ég við hliðinn á honum og hann horfði frekar illilega á mig svona líka skemmtilga brúnn og sætur í framan hehehehehe :klikk:

Jæja ný könnunn, Á Ármann að leifa mér að fá kisu?? Búinn að væla eins og ég get um það en hann er alltaf eitthvað tregur!!! Hvað finnst ykkur ?? :haha:

En held þetta sé nógu góð staðfesting á því að ég sé á lífi, verið góð við hvert annað og lovjúúúúú ;***

 

» 5 hafa sagt sína skoðun

14.10.2006 21:13:02 / gigga

BLOGG :D

Váá hvað allir þurfa að ég bloggi!!! Mæti halda að fólk sakni mín ;) Merkilegt nokk... Margt búið að gerast svosem en eins og allatf þá vita allir af því! :D Er kominn til noregs og hef það fínt þar, er að fara byrja með flesta hestana í þjálfun núna og svo kemur auðvita pjakkurinn út í næsta mánuði sem verður alveg frábært... Er að fara á hestasýningu á morgun og svo til svíþjóðar og til danmerku á mánudaginn að sækja hesta á flug í Billund :D Svaka stuð og brjálað að gera en síðan fer ég í VIKU frí til Egiptalands í desember að kafa og eitthvað þannig skemmtilegt, gistum á svaka hóteli og vesen!! Gott að eiga svona vinnuveitanda sem labbar óvart framhjá ferðaþjónustuskrifstofu og kaupir svona fer undir mann og spyr svo "hérna kemuru með til egipt í viku???" :D:D:D ekki leiðinlegt! Umm annars ekkert meir að frétta en það svo sem og þar af leiðandi NENNI ég ekki að skrifa meir!!! lovja all ;** liltu kjötbollunar mína ;**

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 23:12:36 / gigga

isssss

Þú veist að það er árið 2006 ef...

1. Þú ferð í partý og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.

2. Þú hefur ekki spilað kapal með venjulegum spilum í nokkur ár.

3. Ástæðan fyrir að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er vegna þess að þeir eru ekki að blogga, eru ekki með MySpace og/eða á MinnSirkus.

4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjærstýringunni í stað þess að ýta bara á takkann á sjónvarpinu.

6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.

7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.

8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.

9. Þú ert of upptekin/nn til að taka eftir númer fimm.

10. Þú virkilega leist til baka til að athuga hvort þar væri númer fimm.

11. Svo hlærðu af heimsku þinni.

12. Sendu þetta á vini þína, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri á einhvern hátt.
EF þú féllst fyrir þessu...

Aha ekkert svona! Þú féllst fyrir þessu. ;)

Finnið ykkur svo eitthvað annað að gera en að skoða blogið mitt... hef ekki tíma í að skrifa neitt!! 8|


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14